Hveragerði og nágrenni > Gisting

                                                                                                         Gistiheimilin Frost og funi

 senda fyrirspurn

Fyrsta flokks gistirými þar sem öll aðstaða er skipulögð með vellíðan og hvíld gesta í fyrirrúmi. Gistiherbergi eru alls 12. Sex tveggja manna herbergi eru í hvoru húsi, öll með sérbaði, sjónvarpi og möguleikum til tölvutenginga. Herbergin eru vel búin fallegum húsgögnum og skreytt með íslenskri nútímamyndlist. Í báðum húsunum er borðstofa þar sem reiddur er fram vandaður morgunverður.

 

form_img   Gistiheimilið Frumskógar

 senda fyrirspurn

Gistiheimilið er staðsett í hjarta bæjarins við rólega og gróna götu. Stutt er í alla þjónustu. Boðið er uppá fimm glæsilegar íbúðir með öllum þeim þægindum sem þú  þarfnast, einnig fjögur tveggja og eitt eins manns herbergi með handlaug og sjónvarpi. Gasgrill og frábær heitur pottur. Morgunmatur ef þess er óskað.

                                                                            

  Hótel Örk

 senda fyrirspurn

Margþætt þjónusta í fögru umhverfi.  85 herbergi, rúmgóð og öll með baðherbergi.  Þau eru búin öllum helstu þægindum eins og síma, útvarpi, sjónvarpi og vínskáp.  Sundlaug, níu holu golfvöllur er í garði hótelsins, sömuleiðis tennisvellir og í grenndinni eru ýmsar merktar gönguleiðir.

 

    Tjaldsvæðið við Reykjamörk

 senda fyrirspurn

Tjaldsvæði í gróðursælu umhverfi þar sem aðstaða er öll hin besta. Salerni, sturtur, þvottavél, þurrkherbergi, losun fyrir húsbíla, rafmagn.  Yfirbyggt skýli þar sem hægt er að matast. Sundlaug og leiksvæði fyrir börnin í næsta nágrenni.