|
|||
|
Árborg > afþreying
Húsið á Eyrarbakka er eitt elsta og merkasta hús landsins, byggt 1765. Á sýningum safnsins er sögð saga Hússins og íbúa þess og eru munir tengdir sögu Hússins og Eyrarbakkaverslun til sýnis. Jafnframt eru teknir fyrir valdir þættir úr sögu héraðsins.
Í safninu eru munir frá Eyrarbakka með áherslu á sjósókn, iðnað og félags- og menningarsögu síðustu 100 ára. Stærsti og merkasti safngripurinn er áraskipið Farsæll, sem Steinn Guðmundsson skipasmiður á Eyrarbakka smíðaði fyrir Pál Grímsson, útvegsbónda í Nesi í Selvogi. Einnig eru sýnd veiðarfæri og búnaður sjómanna bæði frá árabátatímanum og upphafi vélbátaútgerðar. Þá á Sjóminjasafnið gott ljósmyndasafn og er hluti þess til sýnis á flettirekkum og í myndamöppum.
Þuríðarbúð var reist af Stokkseyringafélaginu í Reykjavík árið 1949 til minningar um Þuríði Einarsdóttur formann og horfna starfshætti.
Eina rjómabúið sem stendur eftir með öllum búnaði á Íslandi er rjómabúið á Baugsstöðum, skammt frá Stokkseyri. Opið laugardaga og sunnudaga í júlí og ágúst kl. 13-18. Á öðrum tímum eftir samkomulagi.
Bjóða upp á margar skemmtilegar ferðir, s.s. draugaferð um Flóann, skrímsla- og álfaferð, víkingaveislu, óvissuferðir o.fl.
Jeppaferðir á Mýrdalsjökul,
ferðir í Landmannalaugar o.fl.
Listhús, vinnustofa listamanns,
Sverrir Geirmundsson sími: 896 2866. Möguleiki á heimsókn en verður að
hringja á undan.
Ferð í gegnum Draugasetrið er allt í senn fróðleg, skemmtileg og óvænt. Þar hefur verið lagt í mikla vinnu við hugmydaríka hönnun, sagnfræði og tæknilega útfærslu. Vísað er í margskonar draugatrú, en sérstakan sess skipar Kampholtsmóri sem svo er nefndur eftir þeim bæ sem hann var síðast kenndur við, en upphaflega hét hann Skerflóðsmóri eftir þeim stað sem hann varð úti á seint á 18. öld. Opið um helgar og aðra daga eftir samkomulagi.
Icelandic Wonders er um 1.200 fermetra safn tileinkað, álfum, tröllum og norðurljósum. Safn þetta er staðsett á Stokkseyri sem er í um 70 km fjarlægð frá Reykjavík (ca.klst akstur). Safn þetta er á neðstu hæðinni í Menningarhúsinu og við hliðina á safninu er hinn vinsæli humarstaður Við Fjöruborðið.
Handverks- og listhús.
Vinnustofur listamanna.
Ferðaþjónustan Suðurströnd býður upp á nýstárlega möguleika til náttúruskoðunar. Róið er á kajökum um hin sérkennilegu lón einnar fegurstu fjöru sem Ísland á og vatnasvæðið vestan byggðarinnar á Stokkseyri. Boðið er upp á ýmsa möguleika; hálftíma svaml, klukkutíma vatnaferð með eða án leiðsagnar og 2 klukkutíma sjóferð. Innifalið í öllum ferðum er aðgangur að sundlaug og heitum pottum. Sérstök áhersla er lögð á öryggisþáttinn og eru leiðsögumenn með öllum hópum í lengri ferðum.
Um er að ræða stærst safn uppstoppaðra veiðidýra á Íslandi, ásamt skotvopnum, fuglum og munum tengdum veiðum, með alaláherslu á skotveiðar. Opið alla daga 11:00 - 18:00.
Tónminjasetur Íslands var formlega stofnað 15. febrúar 2003. Safnið er opið mán - fös 14-18 og lau - sun 13-18. Frír aðgangur.
Í töfragarðinum finnur þú skemmtun fyrir alla fjölskylduna, húsdýr, afþreyingu fyrir börnin, veitingar og margt fleira.
|
|