|
Árborg > gisting
Gesthús eru þyrping 11 hlýlegra
sumarhúsa á fallegu útivistarsvæði við Engjaveg á Selfossi. Í
hverju húsi er gistirými fyrir 2 - 4, eldunaraðstaða, sjónvarp og baðherbergi
með sturtu. Í þjónustumiðstöð er framreiddur morgunverður, kvöldverður og
ostaréttir auk léttvíns og áfengs öls. Við miðstöðina eru tveir heitir pottar
til afnota fyrir gesti.
100 fyrsta flokks herbergi sem eru búin baðkari
og/eða sturtu. Í öllum herbergjum eru gervihnattasjónvarp, útvarp, sími, háhraða
nettenging, minibar, hárþurrka, buxnapressa o.s.frv.
Einnig eru svokölluð Deluxe herbergi á hótelinu sem búin eru meiri
þægindum en önnur. Í boði eru líka
reyklaus herbergi og fjölskylduherbergi. Á
hótelinu er glæsilegur à la carte veitingastaður með einstöku útsýni
þar sem boðið er upp á girnilega rétti fyrir hópa og einstaklinga.
Veitinga- og gistihúsið Menam er staðsett
skammt frá bökkum Ölfusár. Á efri hæð hússins er lítið
gistiheimili sem rúmar allt að 9 manns. Þar er áhersla lögð á
notalegt umhverfi í heimilislegum stíl. Um er að ræða 1 þriggja
manna herbergi og 3 tveggja manna. Herbergin eru rúmgóð og hlýleg.
Sameiginleg setustofa og baðherbergi. Tilvalið gistirými fyrir litla hópa
eða einstaklinga sem vilja heimilislega og þægilega stemmningu.
Fosstún íbúðarhótel er
staðsett við Aðalgötu Selfoss og er það opið 1.júní - 15.
ágúst. Boðið er upp á 28 tveggja manna íbúðir og 4 fjögurra
manna.Gott aðgengi fyrir hjólastóla. Í hverri íbúð eru uppbúin rúm,
sjónvarp, nettenging og sími. Í eldhúsi er allur borðbúnaður, ísskápur
og örbylgjuofn.Baðherbergi með sturtu/wc.
Lítið ástarhreiður til
leigu í uppgerðu gömlu húsi á Eyrarbakka í aðeins 30 mín. frá
Reykjavík. Uppábúin rúm og handklæði fylgja.
Tilvalin gisting fyrir par, glæsileg aðstaða og notaleg umgjörð. Um ræðir
tvö svefnherbergi stofu og eldhús. Í kjallara er svo glæsilegt rómantískt
baðherbergi með baðkari úti á miðju gólfi og ruggustól við hliðina.
Gistingu
í fallegu timburhúsi, byggðu af Gísla Kristjánssyni Snikkara árið 1997.
Húsið er byggt í anda þeirrar húsagerðarlistar sem hefur tíðkast í þessu
litla þorpi, og þykir vera einkennandi fyrir Eyrarbakka. Húsið, sem nefnt
hefur verið Rein er á tveimur hæðum. Á efri hæðinni eru tvö tveggja manna
herbergi. Þar er einnig stórt og gott sameiginlegt baðherbergi, þráðlaus
nettenging og kaffi-tehitunar aðstöðu.
Í borðstofunni niðri er morgunmatur borinn á borð. Niðri er einnig salerni
og sturta, og í garðinum sjávarmegin er heitur pottur sem stendur gestum
til afnota.
18 fermetra bústaður með
svefnlofti og 5 fermetra verönd. Í honum er svefnpláss fyrir 4 manns og
60 fermetra bústaður með 5 fermetra verönd. Í honum er svefnpláss
fyrir 4-6 manns.
 |
Gistiheimilið Kvöldstjarnan |

|
Nýtt gistihús á Stokkseyri.
Gistiaðstaða fyrir 10-12 manns. Íbúð er á efrihæð með stórum svölum.
Herbergi á neðrihæð eru með vaski. Setustofa,bað og eldunaraðstaða.
Sólpallur er á neðrihæð.
Tjaldsvæðin eru staðsett við skemmtilegt
útvistarsvæði í hjarta Selfoss. Svæðið þjónar tjöldum, tjaldvögnum,
fellihýsum, hjólhýsum og bílhýsum. Sturtur, salerni,
almenningssími, eldavél, þvottavél og þurrkari. Sérstakt stæði er fyrir
húsbíla. Gestir á tjaldvæðinu hafa aðgang að tjaldmiðstöðinni. Þar
er eldavél, vaskur til að vaska upp leirtau, pottar, pönnur og áhöld til
eldamennsku, borð og stólar.
Afar góð
tjaldsvæðisaðstaða býðst í Þjórsárveri.
Tjaldsvæðin hafa mikið verið endurbætt og er aðstaðan nú með því
besta sem gerist á landinu. Rúmgóð svæði fyrir tjöld, tjaldvagna, fellihýsi,
húsbíla o.þ.h. Nýtt vandað
þjónustuhús auk aðstöðu í Þjórsárveri. Salerni, sturtur, þvottavél,
þurrkari, skolvaskur með heitu og köldu vatni, barnaleikvöllur rétt hjá
o.fl.
Aðstaða fyrir: Tjöld Tjaldvagna/fellihýsi/hjólhýsi
Húsbíla
Á Stokkseyri er tilvalið að dvelja og þar á engum að
leiðast. Bryggjuhátið verður haldin í júlí. Þar er hið fræga Draugasetur
sem inniheldur "Draugabarinn" og sagnfræði, hið nýja Álfa, Trölla- og
norðurljósasafn, Rjómabúið á Baugstöðum, Þuríðarbúð, Töfragarðurinn,
Veiðisafnið, veitingastaðurinn Við Fjöruborðið, Kajakaferðir og í Lista-
og Menningarverstöðinni eru margir lista- og handverksmenn með vinnustofur
og gallerí. Í Shellskálanum fæst matvara og ekki má gleyma sundlauginni á
staðnum. Fjaran við Stokkseyri er rómuð fyrir mikla náttúrufegurð og nýtur
gífurlegra vinsælda meðal ferðamanna. Fyrir austan Stokkseyri er
Knarrarósviti en hann er 26 metra hár.
|