Uppsveitir Árnessýslu > Afþreying

 

  Vala - verslun og listhús


 senda fyrirspurn

Verslunin Vala er annars vegar matvöruverslun með áherslu á lífrænar vörutegundir, og hins vegar Listhús. Í Listhúsinu gefst tækifæri til að kaupa eða skoða það ótrúlega fjölbreytta úrval handverks sem verður til á Sólheimum. Þar kennir ýmissa grasa, alls konar listmunir og handverk frá hinum mismunandi vinnustöðum á Sólheimum og kertin frá kertagerðinni.Verslunin er opin virka daga kl. 14.45 - 18
Messusunnudaga kl. 14 - 17
 

 

Gallerí Laugarvatn


Handverk og listmunir til sýnis og sölu. Námskeið. Einnig húsgagnabólstrun.

 

Íslenskir ferðahestar


 senda fyrirspurn

Ógleymanlegar hestaferðir með leiðsögn í fallegri náttúru.

 

  Dýragarðurinn Slakki


 

Húsdýragarður, kaffihús, leikvöllur, minigólf og púttvöllur. Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Opið:10.00-18.00 alla daga yfir sumartímann.

 

ATV Tours


 senda fyrirspurn

ATV Tours býður upp á fjórhjólaferðir um Haukadalsskóg þar sem ekið er um torfarna slóða í skóginum yfir ár og læki og upp á Haukadalsheiði. Leiðirnar eru fjölbreyttar og valdar með tilliti til hópsins sem ferðast er með hverju sinni. Frábær leið til að kynna landið fyrir ferðamönnum í nágrenni við Gullfoss og Geysi. Til að aka hjólunum þarf að hafa bílpróf, en allir geta ferðast með sem farþegar. Hjólin eru fjórhjól eða sexhjól, sjálfskipt, auðveld og örugg í akstri.  Ferðir alla daga, lágmarksfjöldi 4 manns en hámark 38.

 

Ferðaþjónustan Úthlíð

 senda fyrirspurn

Í Úthlíð hefur verið rekin hestaleiga í 12 ár. Boðið er upp á hesta fyrir vana sem óvana og leiðsögumaður fylgir alltaf með. Reiðleiðirnar eru fallegar en farið í upp í Úthlíðarhraun. Hægt er að komast í lengri ferðir t.d. inn í Brúarárskörð en það tekur um 5-6 klst með labbinu upp. Hestaleigan er opin frá kl. 13:00 til 18:00 alla daga nema föstudaga. Á staðnum er einnig sundlaugin Hlíðarlaug, veitingaskálinn Réttin þar sem haldin eru böll um helgar og aðrar uppákomur, bensínstöð, ferðamannaverslun og 9 holu golfvöllur.

 

 

Litboltavöllurinn

 

Litbolti er skemmtilegur kostur fyrir alls kyns hópa, vini eða vinnufélaga. Völlurinn er staðsettur nálægt ferðaþjónustunni í Úthlíð á bænum Rauðaskógi.

 

Flúðasiglingar á Hvítá


 senda fyrirspurn

Komdu með í Flúðasiglingu á Hvítá - og taktu vini þína með, fjölskyldu eða vinnufélaga. Hvítá er á fyrir alla og siglingin passleg fyrir óvana og hvers kyns hópa en um leið frábær skemmtun og undursamleg náttúruskoðun. Flúðaskálinn okkar að Drumboddsstöðum er aðeins í um 1-1½ klst akstursfjarlægð frá Reykjavík og í um 10 km fjarlægð suður af Geysi. Þar er boðið upp á fullkomna veitingaaðstöðu; skálinn getur hýst allt að 100 manns í einu og hópar geta valið um matseðil á hóflegu verði. Símanúmerið á Drumboddsstöðum er 486 8990.

 

Garðyrkjustöðin Espiflöt


 senda fyrirspurn

Boðið upp á ferðir með leiðsögn um gróðurhúsin. Opið samkvæmt samkomulagi.

 

Geysisstofa


 senda fyrirspurn

Gestir eru leiddir í gegnum sögu lands og þjóðar allt frá mótun til nútíðar og er notast við hátæknibúnað og líkön af fullkomnustu gerð. Í Geysisstofu má m.a. fræðast um eldgos, jarðskjálfta, jökla, hveri, fossa, vatnsbúskap og gróðurfar.

 

Bátaleigan á Laugarvatni

 senda fyrirspurn

Bátaleigan er rekin á sumrin og er í umsjá Íþróttamiðstöðvar Íslands. Kajakar og árabátar, geta einnig útvegað veiðileyfi og farið með hópa í golf á golfvöllinn í Miðdal. Bjóða upp á ýmis konar afþreyingu fyrir fjölskyldur og hópa, s.s. inni- og útileiki, ratleiki o.fl. Sjá um gufubaðið á Laugarvatni þaðan sem bátaleigan er rekin.

 

Útey I

 

Nýr, reyktur silungur.

 

Byggðasafnið að Gröf


Byggðasafnið að Gröf er opið eftir samkomulagi.

 

 

Stóra Laxá á svonefndri Tangaleið.

Ís-jeppar


 

Jeppaferpir fyrir 5 eða fleiri.

 

Fröken Fix


 senda fyrirspurn

Ýmis konar handverk; bútasaumur, tuskudúkkur og trévara. Námskeið, heima og að heiman.

 

Gallerí Garðakúnst


 senda fyrirspurn

Fjölbreytt úrval steyptra listmuna í garðinn, sumarbústaðinn, á sólpallinn, húsvegginn, svalirnar eða hvar sem er. Munirnir geta verið úti allt árið um kring. Opið alla daga frá kl. 13:00 til 18:00 og eftir samkomulagi.

 

Glervinnustofa Rutar


 

Glervinnustofa. Mikið úrval af skálum, kertastjökum, myndum, ostabökkum o.fl.

 

Golfvöllurinn Efra-Seli

 senda fyrirspurn

Pizzur og aðrar veitingar.

 

Syðra-Langholt

 senda fyrirspurn

Syðra-Langholt býður upp á hestaferðir eftir samkomulagi. Opið allt árið.

 

 

Fossnes


 senda fyrirspurn

Hestaferðir, gisting og matur eftir samkomulagi.

 

Steinsholt


 senda fyrirspurn

Steinsholt er mjög vel staðsett með tilliti til lengri og styttri hestaferða. Við erum alveg við brún hálendisins í mjög fallegu umhverfi. Okkur væri það mikil ánægja að leyfa ykkur að njóta þess með okkur hvort sem það er í langan eða stuttan tíma, allt eftir þínum óskum og þörfum. Þið getið komið á hestbak og farið í klst. reiðtúr eða lengur.Við bjóðum upp á mjög skemmtilegar tveggja og þriggja tíma hestaferðir og frábærar dagsferðir.

 

Vestra-Geldingarholt


 senda fyrirspurn

Reiðskóli, hestaferðir, yoga, gisting o.fl.

 

Hestakráin

 senda fyrirspurn

Aðstandendur Hestakrárinnar hafa mikla reynslu í ferðaþjónustu og hafa til margra ára rekið hestaleigu og skipulagt hestaferðir fyrir hópa, allt frá dagsferðum upp í vikuferðir. Árlegar Prinsessu- og Víkingaferðir eru t.d. bráðskemmtilegar óvissuferðir, sérsniðnar að þörfum hvors kyns fyrir sig, og njóta mikilla vinsælda.   

          

 

Þjóðveldisbærinn í Þjórsárdal


 

Þjóðveldisbærinn er endurgerð hins forna Stangarbæjar og er opinn frá 1. júní til um 8. september alla daga vikunnar frá kl. 10:00 til 12:00 og 13:00 til 18:00 og skv. samkomulagi.