Uppsveitir Árnessýslu > Gisting

Ferðaþjónustan Sel

 

1x6 manna bústaður (2 svefnherbergi og loft).  Einnig smáhýsi og heimagisting. Vel staðsett fyrir skoðunarferðir um Suðarland. Veiðileyfi í Brúará. Opið allt árið.

 

Tjaldstæðið Þrastarlundi

 

Tjaldsvæði á einum fallegasta stað Suðurlands. Á staðnum er: WC, kalt vatn, verslun, veitingastaður, gönguleiðir og útivistarsvæði.

 

Félagsheimilið Borg

 senda fyrirspurn

Félagsheimilið Borg er allt hið glæsilegasta eftir gagngerar endurbætur. Þar rúmast í sæti 150 - 230 manns allt eftir því hvernig raða á í salinn. Aðstaða er mjög góð fyrir fundi, veislur, ættarmót og hvers kyns samkomur og skemmtanir. Borð og borðbúnaður er á staðnum ásamt vel búnu eldhúsi. Gott tjaldsvæði er við Borg þar sem byggð hefur verið salernis- og sturtuaðstaða. Á svæðinu er einnig verslun, íþróttavöllur og veitingahús.

 

Minni Borgir

 senda fyrirspurn

Framtíðar frístundahúsabyggð að Minni-Borg í Grímsnesi. Falleg og vönduð frístundahús til dags-, helgar,- og vikuleigu. Öðrum áfanga er lokið og í boði eru 5 stk 80 fm hús (62 fm jarðhæð, með 20 fm svefnlofti). Lögð er mikil áhersla á þægindi og þjónustu. Þá eru opin til leigu 7 hús 30fm að stærð í svokölluðu Skógarþorpi.

 

Fosshótel Nesbúð


 senda fyrirspurn

Fosshótel Nesbúð er hótel og veitingastaður á Nesjavöllum þar sem hægt er að dvelja í góðu yfirlæti í ægifögru umhverfi. Hótelið býður upp á 20 látlaus herbergi með sturtu/wc, 20 herbergi með sameiginlegri snyrtiaðstöðu og 20 herbergi fyrir svefnpokagistingu. Veitingahús sem tekur 80 - 100 manns í sæti og bar ásamt tveimur setustofum og góðum fundarsal sem tekur allt að 40 manns. 2 heitir pottar eru á staðnum.

 

Gistiheimilið Brekkukot

 senda fyrirspurn

Gisti- og heilsuheimilið Brekkukot er opið árið um kring. Í boði er gisting í tveimur húsum, Brekkukoti og Veghúsum, samtals 33 rúm. Allir gestir hafa aðgang að útisundlaug og heitum potti og geta sjálfir séð um matseld að hluta eða öllu leyti en í boði er morgunverður , hádegisverður, kaffi og kvöldverður fyrir hópa ef óskað er. Glæsileg aðstaða til funda, námskeiða og ráðstefnuhalds í Sesseljuhúsi og mismunandi byggingum á Sólheimum.

 

Tjaldsvæðið Hraunborgum

 

Á staðnum er þjónustuhús, upphitað salerni, snyrtiaðstaða, einnig er útivaskur og aðstaða þar í kring.  Tjaldsvæðið er alveg við félagsheimilið þar sem er sundlaug, vaðlaug, heitir pottar og eimbað. Fótboltavöllur, körfuboltavöllur og leikvöllur. Minigolf 13 brautir, 9 holu golfvöllur. Allt í göngufæri við tjaldstæðið. Einnig er þvottavél og þurrkari til afnota fyrir gesti.

 

Útilífsmiðstöðin Úlfljótsvatni


 senda fyrirspurn

Glæsilegt tjaldsvæði, veiðileyfi, útigrill o.fl. Opið frá 31. maí til 1. sept. Sérstök dagskrá um verslunarmannahelgina.

 

Hótel Valhöll

 senda fyrirspurn

30 herbergja sveitahótel í miðri óspilltri náttúru þjóðgarðsins á Þingvöllum. Hótelið býður gestum sínum einstakt tækifæri á að upplifa þann kyrrláta andblæ sem yfir Þingvöllum ríkir og þá undurfögru náttúru sem aldrei fyrr á Íslandi, á stað þar sem saga íslensku þjóðarinnar er meitluð í hvern stein.

 

Skógarhólar

 

Góð aðstaða fyrir hópa, eldunar- og hreinlætisaðstaða, gisting og tjaldsvæði. 

 

Þjónustumiðstöðin á Þingvöllum

 senda fyrirspurn

Upplýsingar, tjaldsvæði, veiðileyfi, sala á léttum veitingum. 

 

Hótel Hvítá

 senda fyrirspurn

Gisting í uppábúnum herbergjum ásamt svefnpokagistingu. 1-2 manna herbergi með eða án baðs. Fjölskylduherbergi fyrir 5-10 manns. Veitingasalur með útsýni yfir Hvítá. Gott tjaldsvæði bæði fyrir tjöld og húsbíla. Leikvöllur fyrir börnin og stutt í húsdýragarð. Tilvalinn staður fyrir ættarmót, góð aðstaða fyrir hestamenn. 

 

Ferðaþjónustan Úthlíð 

 senda fyrirspurn

Í Úthlíð í Biskupstungum er rekin alhliða ferðaþjónusta. Þar er sundlaugin Hlíðarlaug, veitingaskálinn Réttin þar sem haldin eru böll um helgar og aðrar uppákomur, bensínstöð, ferðamannaverslun, 9 holu golfvöllur, hestaleiga og leigð út orlofshús í nokkrum stærðum sem öll eru með sjónvarpi, útvarpi, útigrilli og heitum pottum.

 

Gilbrún

 

Fjögur herbergi, eldunaraðstaða, setustofa og heitur pottur.     

 

Gistiheimilið Geysir

 senda fyrirspurn

Uppábúin rúm, 12 herbergi, 2 x 1 manns herbergi, 9 x 2ja manna og 1 þriggja manna herbergi. Eldunaraðstaða og stór borðsalur. Hægt að fá morgunverð sé þess óskað.

 

Hótel Gullfoss

 senda fyrirspurn

16 tveggja manna herbergi með baði ásamt 70 manna veitingasal með fallegu útsýni. Boðið er upp á fjölbreyttan íslenskan heimilismat og kaffimeðlæti ásamt vínveitingum fyrir einstaklinga og hópa. Áhersla á persónulega þjónustu. Í nágrenninu eru fjölbreyttir afþreyingarmöguleikar og helstu náttúruperlur Suðurlands skammt undan. 

 

Hótel Geysir

 senda fyrirspurn

Gistiaðstaða er margs konar, allt frá svefnpokaplássi til lúxussvítu. Þannig kemur hótelið til móts við þarfir allra. Á hótelinu eru 20 Stúdíóíbúðir ( 2ja manna ), 4 Grand-Stúdíóíbúðir m/hornbaðkari ásamt  minni hótelherbergjum. Einnig smáhýsi, glæsilegur veitingastaður, heitir pottar og sundlaug. Njótið þess að vera í sveitasælunni með okkur.

 

Húsið

 senda fyrirspurn

Gistiheimili miðsvæðis í Reykholti Biskupstungum, gistiaðstaða fyrir allt að 24 manns. Morgunverður ef þess er óskað.

 

Sveitasetrið

 senda fyrirspurn

3 velbúnir bústaðir í Biskupstungum. Með heitum nuddpotti, sjónvarpi, gasgrilli, video og amerískum rúmum og öllum helstu heimilistækjum. Innifalið í verði er upp á búin rúm, handklæði, og allar hreinlætisvörur og þrif eftir notkun.

 

Hrosshagi

 senda fyrirspurn

Útleiga á sumarbústað á fallegum stað í Biskupstungum.  Bústaðurinn er hlýlegur og vel búinn.  Eitt svefnherbergi með hjónarúmi og koju, svefnsófi í stofu og möguleiki á aukarúmi.  Stutt í margar náttúruperlur og sögustaði; Geysi, Gullfoss, Skálholt, Laugarvatn og Þingvelli. Útsýni yfir vatnasvæði til Heklu og Eyjafjallajökuls. Hefðbundinn búskapur er stundaður á bænum og fólk velkomið að koma í fjós. Skógrækt á jörðinni og þar eru skemmtilegar gönguleiðir. Einnig mikið fuglalíf á Hrosshagavík.  Við veg 35.   

 

Skálholtsskóli

 senda fyrirspurn

Allt andar af sögu og helgi á Skálholtsstað sem hefur áhrif á flesta þá er þangað koma. Í Skálholtsskóla eru fræðslu- og ráðstefnusalir sem rúma um 80 manns. Matsalurinn með bókakaffi rúmar 120 manns. Í skólanum eru 36 gistirými auk gistiaðstöðu fyrir 35 í öðrum húsakynnum staðarins. Boðið er upp á uppbúin rúm sem og svefnpokagistingu. Morgunverðarhlaðborð fylgir gistingu. Staðarskoðun og miðaldakvöldverður einnig í boði.

 

Tjaldsvæðið Laugagerði

 

Vinalegt tjaldsvæði á besta stað. Húsdýragarður fyrir börnin skammt frá. Stutt í margar helstu náttúruperlur Suðurlands. 

 

Tjaldsvæðið við Faxa

 senda fyrirspurn

Á tjaldsvæðinu er ný og snyrtileg hreinlætisaðstaða ásamt nokkrum leiktækjum fyrir börnin. Tilvalinn staður fyrir fólk sem vill njóta friðsældarinnar í sveitinni á skjólgóðu og fallegu tjaldsvæði þar sem útsýnið er sannkallað augnakonfekt, eða skreppa á hina ýmsu sögufrægu staði sem eru í nágrenninu. Stutt er í sund og verslanir.

 

Efsti-dalur II

 senda fyrirspurn

Gisting á sveitabæ við veg nr. 37, opið allt árið. Gisting í uppábúnum rúmum í 4 tveggja manna herbergjum. Eldunaraðstaða og heitur pottur. Fallegt útsýni og áhugaverðar gönguleiðir í mikilli náttúrfegurð um nágrennið. Hestaleiga fyrir gesti. Silungsveiði í Brúará.

 

Farfuglaheimilið Dalsel

 senda fyrirspurn

Uppábúin rúm og svefnpokapláss ( 42 pláss alls í tveimur húsum), 50 manna salur, heitur pottur, eldunaraðstaða og morgunverður ef þess er óskað.

 

Hótel Edda ÍKÍ

 senda fyrirspurn

28 herbergi sem eru öll búin sér baðhergi með sturtu. Ágæt aðstaða til funda- og ráðstefnuhalds fyrir minni hópa. Á hótelinu er fallegur og rómantískur veitingastaður með útsýni yfir vatnið. Þar er lögð áhersla á létta rétti yfir daginn og glæsilegan matseðil á kvöldin. Hægt er að mæla með veglegu morgunverðarhlaðborði fyrir þá sem vilja byrja daginn vel. Sundlaug er einungis í 5 mínútna göngufjarlægð frá hótelinu og við vatnið er hið velþekkta Laugarvatnsgufubað. Opið frá júní til ágúst.

 

Hótel Edda ML

 senda fyrirspurn

Alls eru 103 herbergi á hótelinu á tveimur hæðum í 3 húsum. Herbergin eru ýmist með handlaug eða sér baðherbergi.  Ágæt aðstaða til funda- og ráðstefnuhalds er á hótelinu. Svefnpokagisting er fyrir alls 50 manns í bíósal skólans með dýnur á gólfinu. Mjög góður veitingastaður er á hótelinu sem tekur allt að 200 manns í sæti. Sundlaug er einungis í 5 mínútna göngufjarlægð frá hótelinu og við vatnið er hið velþekkta Laugarvatnsgufubað. Opið frá júní til ágúst. 

 

Íþróttamiðstöð Íslands

 senda fyrirspurn

Gisting: 15 svefnherbergi, hvert með tveimur nýjum rúmum og kojusamstæðu þannig að svefnaðstaða í rúmum er fyrir 60 manns, en að auki er hægt að bæta við dýnum í herbergi og í sal í kjallara hússins. Vaskur og spegill er í hverju herbergi, sameiginleg snyrtiaðstaða. Einnig íþróttamót, námskeið, æfingabúðir, óvissuferðir o.fl.

 

Tjaldmiðstöðin

 

Tjald- og hjólhýsasvæði, veitingar, smáréttir.

 

 

Ferðamiðstöðin Flúðum

 

Tjaldsvæði, veitingar. Opið allt árið (sumar-/vetrartími).

 

Hótel Flúðir

 senda fyrirspurn

Hótel Flúðir bjóða upp á 32 glæsileg herbergi, öll með baði. Mjög góð aðstaða er til ýmiss konar funda- og námskeiðahalds allt árið um kring. Veitingasalur með frábæru útsýni yfir sveitina. Eftir matinn er tilvalið að setjast niður í rólegu andrúmslofti hótelbarsins og njóta tilverunnar.

 

Syðra-Langholt

 senda fyrirspurn

Gisting fyrir hópa og einstaklinga. 12 herbergi sem eru öll með handlaug en 4 sturtur eru í húsinu og stór pottur í garðinum. Morgunverður og matsala eftir samkomulagi. Hestaleiga, tjaldsvæði á Álfaskeiði.

 

Ásólfsstaðir

 senda fyrirspurn

Að Ásólfsstöðum er boðið upp á gistingu allan ársins hring. Tjaldsvæðin eru við kjarrlendi og beitarhólf fyrir hross eru í göngufjarlægð. Svefnpokapláss er til staðar fyrir einstaklinga, fjölskyldur og stærri hópa í tveimur 20 m2 bjálkahúsum. Boðið er upp á eldunar- og hreinlætisaðstöðu. Á staðnum er einnig heitur pottur og kolagrill.  Rólegur staður í fallegu umhverfi Þjórsárdals þar sem Hekla blasir við. Tilvalinn áningarstaður á leið inn á hálendið. 

 

Brautarholt

 

Svefnpokapláss, tjaldsvæði, eldunaraðstaða, sundlaug, leikvöllur.

 

Ferðamiðstöðin Árnes

 senda fyrirspurn

Við Ferðamiðstöðina eru tvö gestahús. Annað þeirra býður upp á gistingu fyrir 20 manns í uppábúnum rúmum í tveggja manna herbergjum. Eldunaraðstaða, setustofa, verönd með heitum potti og grill. Í hinu húsinu er boðið upp á svefnpokagistingu í fjórum herbergjum fyrir 16 manns. Eldunaraðstaða og setustofa. Glæsilegt tjaldsvæði með góðri hreinlætisaðstöðu og heitum potti. Sundlaug, íþróttavöllur og leiktæki fyrir börnin. Stórt samkomuhús þar sem hægt er að panta veitingar.  

 

Hótel Freyja,  Minni-Mástunga

 senda fyrirspurn

6-10 manna heilsárshús, mismunandi skreytingar eftir árstíma. Heitir pottar. Handverksbúð.

 

Fossnes

 senda fyrirspurn

Hestaferðir, gisting og matur eftir samkomulagi. 

 

Hestakráin

 senda fyrirspurn

Hestakráin er skemmtileg blanda af sveitakrá, veitingastað og gistihúsi. Hún er einstaklega vel í sveit sett – umkringd spennandi útivistarmöguleikum. Gistirými er fyrir 22 í tveggja og fjögurra manna herbergjum með snyrtingu og baði. Hestakráin er vel fallin til veisluhalda og rúmar hæglega 50-70 gesti. Hún er því tilvalinn vettvangur árshátíða og annarra mannfagnaða.

 

Hólaskógur

 

Gististaður við jaðar hálendisins. Svefnpokapláss fyrir 80 manns og eldunaraðstaða. Mjög góð aðstaða fyrir hestamenn.

 

Hótel Hekla

 senda fyrirspurn

Hótel Hekla er eitt besta sveitahótel sunnan heiða, með 37 þægileg og vel búin herbergi, öll búin sturtubaði.  Rúmgóður og bjartur matsalurinn tekur 120 manns í sæti. Hér er íslenska lambið haft í hávegum haft ásamt glænýjum fiski frá nærliggjandi sjávarþorpum. Fundarsalur, vel búinn tækjum, tekur allt að 50-60 manns í sæti. Hótelið stendur miðsvæðis á Skeiðunum með útsýni til allra átta.

 

Steinsholt

 senda fyrirspurn

Gistirými fyrir ellefu manns í uppábúnum rúmum. 5 tveggja manna herbergi og 1 eins manns herbergi. Morgunverður er innifalinn í verði. Aðrar máltíðir er einnig hægt að fá en þær þarf að panta sérstaklega. Heitur pottur. Steinsholt er mjög vel staðsett með tilliti til lengri og styttri hestaferða. Boðið upp á klst. reiðtúra sem og lengri ferðir.

 

 

Tjaldsvæðið Sandártungu

 

Fjölskyldutjaldsvæði. Hreinlætisaðstaða, leiktæki, gönguleiðir og sundlaug í nágrenninu. Fallegt, skjólgott skógivaxið útivistarsvæði fyrir þá sem ferðast um Suðurland.  

 

Vestra-Geldingarholt

 senda fyrirspurn

Reiðskóli, hestaferðir, gisting, yoga o.fl.

 

 

Kerlingarfjöll

 senda fyrirspurn

 Kerlingarfjöll eru ein af náttúruperlum landsins. Þar fara saman stórkostlegt landslag, fjölbreytt og fróðleg jarðfræði og síðast en ekki síst samspil jökla og jarðhita, gróðurs og gróðurleysis og ótrúleg litadýrð. Öllu þessu gleymir enginn sem upplifir fagran dag í þessari einstöku náttúruperlu.