Uppsveitir Árnessýslu > Veitingar

Gamla Borg

 senda fyrirspurn

Gamla Borg er fallegt og nýuppgert þinghús Grímsnesinga. Þar er nú rekið kaffihús, krá og dansstaður. Veitingarnar sem eru í boði á Gömlu Borg eru bakaðar af ást og alúð í eldhúsinu heima; kökur, tertur, kleinur og flatbrauð í anda hinnar íslensku húsmóður. Tilvalinn staður fyrir hópa. Getum útvegað leiðsögn um sveitina, harmoníkuleik, matarveislur o.fl.

 

Kaffihúsið Græna kannan

 senda fyrirspurn

Græna kannan er nýtt kaffihús þar sem allar veitingar eru framleiddar úr lífrænt ræktuðu hráefni. Yfir vetrarmánuðina er kaffihúsið opið öll föstudagskvöld en á sumrin er opið alla daga. Fyrirhugað er að þar verði ýmsar óvæntar uppákomur og menningarviðburðir, svo sem tónlist, leiklist, söngur eða jafnvel upplestur, jafnframt sem húsið er hugsað sem eins konar félagsmiðstöð fyrir íbúana þar sem íbúum Sólheima gefst kostur á að skemmta sjálfum sér og öðrum.

 

Fosshótel Nesbúð


 senda fyrirspurn

Fosshótel Nesbúð er hótel og veitingastaður á Nesjavöllum þar sem hægt er að dvelja í góðu yfirlæti í ægifögru umhverfi. Veitingahúsið tekur 80 - 100 manns í sæti og þar er einnig bar ásamt tveimur setustofum og góðum fundarsal. 

 

Þrastarlundur

 

Veitingar, ferðavörur.

 

Hótel Valhöll

 senda fyrirspurn

Veitingarstaðurinn á Hótel Valhöll er löngu landskunnur. Af matseðli hótelsins er hægt að velja úr fyrsta flokks hráefni úr Þingvallarsveit, matreitt með ferskum kryddjurtum og berjum úr nágreninu. Hótel Valhöll leggur ríka áherslu í matseld sinni á ferskt íslenskt lambakjöt og nýveidda bleikju úr Þingvallarvatni en einnig er hægt að velja úr fjölda smárétta á matseðlinum, njóta grillaðra matseldar í bakgarði hótelsins, eða prófa hið einstaka kökuhlaðborð hótelsins á sunnudögum. Barinn og seturstofan á hótelinu býða svo þeirra sem njóta vilja þægilegra stunda í vinalegu umhverfi.

 

Þjónustumiðstöðin á Þingvöllum

 senda fyrirspurn

Léttar veitingar. 

 

Hótel Hvítá

 senda fyrirspurn

Veitingasalur með útsýni yfir Hvítá. 

 

Gullfoss Gullfosskaffi

 

Veitingar og minjagripir.

 

Hótel Geysir

 senda fyrirspurn

Á hótelinu er vinsæll veitingastaður sem er opinn alla daga ársins. Í hádeginu gefast kostir; annaðhvort má panta af fjölbreyttum matseðli okkar eða gestir geta gætt sér af girnilegu hlaðborði fisk- og kjötrétta þar sem einnig eru fersk salöt, súpa og nóg af nýbökuðu brauði. Sérstök stemmning myndast á kvöldin, þar sem hægt er að sitja við kertaljós og rómantíska borðtónlist og njóta stórkostlegs útsýnis yfir hverasvæðið. Einnig gefst kostur á að njóta bjartra nótta undir berum himni við hótelið þar sem boðið er upp á grillmat.

 

Kaffi Klettur

 

Notalegur veitingastaður í friðsælu umhverfi þar sem eru framreiddar veitingar við allra hæfi.  Fjölbreyttur hópmatseðill, pláss fyrir allt að 50 manns.  Mjög góða aðstaða fyrir hestafólk á staðnum og hestagerði er við húsið.

 

Skálholtsskóli

 senda fyrirspurn

Í Skálholtsskála er hægt að fá ýmis konar heimilislegan mat.  Þar fer einnig fram kaffisala á daginn en sérstaða veitingasölunnar í Skálholtsskóla er án efa hinir sívinsælu 17. aldar kvöldverður og miðaldakvöldverður.  Þar sem blandað er menningardagskrá frá þeim tímum við matargerð þess tíma

 

Veitingaskálinn Réttin 

 senda fyrirspurn

Í veitingaskálanum Réttinni, Úthlíð, er hægt að kaupa léttar veitingar um sumartímann, en einnig er hægt að panta mat fyrir hópa allt árið. Salurinn tekur um 120 manns í sæti og þar er stórt svið og útipallur sem snýr út að sundlauginni. Yfir sumartímann er haldin böll öll laugardagskvöld oftast með lifandi tónlist.

 

Hótel Edda ÍKÍ

 senda fyrirspurn

Á hótelinu er fallegur og rómantískur veitingastaður með útsýni yfir vatnið. Þar er lögð áhersla á létta rétti yfir daginn og glæsilegan matseðil á kvöldin. Hægt er að mæla með veglegu morgunverðarhlaðborði fyrir þá sem vilja byrja daginn vel.

 

Hótel Edda ML

 senda fyrirspurn

Mjög góður veitingastaður er á hótelinu sem tekur allt að 200 manns í sæti. Hægt er að velja girnilega rétti á sanngjörnu verði af matseðli.

 

Tjaldmiðstöðin

 

Veitingar, smáréttir, ís. Opið allt árið (sumar-/vetrartími).

 

16 Veitingahúsið Lindin

 senda fyrirspurn

Veitingastaður, kaffihús og bar. Fjölbreyttur matseðill með áherslu á villibráð.

 

Ferðamiðstöðin Flúðum

 

Veitingar. Opið allt árið (sumar-/vetrartími).

 

Hótel Flúðir

 senda fyrirspurn

Á hótelinu er lögð er áhersla á gæði jafnt í þjónustu sem matreiðslu, úr veitingasal er frábært útsýni yfir sveitina. Eftir matinn er tilvalið að setjast niður í rólegu andrúmslofti hótelbarsins og njóta tilverunnar.

 

 

Kaffi-Sel

 senda fyrirspurn

Pizzur og aðrar veitingar. Opið alla daga frá 15. maí til 1. okt, á öðrum árstímum er hægt að panta sérstaklega.

 

 

19 Útlaginn

 

Kaffihús, veitingar, bar, skemmtanir. Opið allt árið.

 

 

Ferðamiðstöðin Árnes

 senda fyrirspurn

Stórt samkomuhús þar sem hægt er að panta veitingar og fá frábært morgunverðarborð. Úrvals matseðill og bar.Í Árnesi er góð aðstaða til veisluhalda allt árið. Ættarmót, árshátíðir, þorrablót o.fl.

 

 

Hestakráin

 senda fyrirspurn

Hestakráin er vinsæl og aðlaðandi sveitakrá og veitingahús sem er vel fallin til veisluhalda og rúmar hæglega 50-70 gesti. Hún er því tilvalinn vettvangur árshátíða og annarra mannfagnaða.

 

 

Hótel Hekla

 senda fyrirspurn

Starfsfólk Hótels Heklu er þekkt fyrir hlýlega og góða þjónustu og frábæran mat.  Rúmgóður og bjartur matsalurinn tekur 120 manns í sæti. Hér er íslenska lambið haft í hávegum haft ásamt glænýjum fiski frá nærliggjandi sjávarþorpum. Í nóvember er boðið upp á villibráð og í desember rómað jólahlaðborð.

 

 

Leita í vefsíðu