|
|||
|
Rángárþing ytra og nágrenni > afþreying
Býður upp á 6-7 daga hestaferðir. Einnig svefnpokagisting, pláss fyrir 20-30 manns. Panta þarf fyrirfram. Sumarponun
Sérsniðnar hestaferðir, t.d. Valkirju-, hjóna-, ævintýra- og barnaferðir á Holtamannaafrétti.
Leir-, gler- og málverk. Fjölbreytt úrval. Opið eftir samkomulagi.
Opið maí til september frá kl. 13:00 til 18:00. Lokað alla miðvikudaga.
Ýmis
konar handverk úr grjóti og gleri, s.s. kertastjakar, skartgripir,
englar o.fl.
Ýmis konar fallegt og vandað handverk. Ýmis námskeið. Opið daglega á sumrin. Vetraropnun um helgar frá kl 14:00 - 18:00 og eftir samkomulagi.
Gönguferðir á Heklu. Markmiðið er að smala saman allri fegurð, allri gleði og síðast en ekki síst, allri mögulegri reynslu sem í óbyggðunum leynist og eignast þannig sjóð ógleymanlegra minninga.
Spennandi
hestaferðir: 6 daga ferð Hekla-Landmannalaugar, 8 daga ferð
Landmannalaugar-Fjallabak. Innifalið: Hestar og reiðtygi, leiðsögn, hjálmar
og regnfatnaður, gisting, fullt fæði, flutningar á farangri.
Manngerðir hellar sem hægt er að skoða. Aðgangseyrir. Hælgt að fá kaffi og meðlæti en það þarf að panta með fyrirvara. Sumaropnun.
Við erum í Landmannalaugum frá 1. júlí til 10.
september.Upplifið íslenska hestinn á fjöllum í stutta stund eða
heilan dag, eftir því hvað ykkur hentar. Við bjóðum upp á stuttar
ferðir um nágrenni Landmannalauga og dagsferðir inn í hrikalega fegurð
Jökulgilsins.Við höfum hesta við allra hæfi, reiðtygi hjálma og
regnföt. Þaulkunnugir leiðsögumenn.
Ferðir
á Langjökul í maí - ágúst. Á Hellisheiði / Lyngdalsheiði í des -
maí. Ferðir á vagni við Hellu frá september til desember. Opið allt
árið. Einnig boðið upp á
svokallaðar hundaþjálfunarferðir í kringum Heklu á þeim tíma sem
enginn snjór er til staðar og ekki hægt að komast upp á jökul.
Á Leirubakka er hestamiðstöð þar sem er starfandi hestaleiga.
Hestaferðir um nágrennið eru rómaðar og slíkar ferðir eru öllum
minnisstæðar sem reynt hafa. Ýmis konar hestaferðir eru í boði á
Leirubakka, jafnt stuttar og léttar sem langar og strangar. Reiðleiðir eru
fjölbreyttar og hægt að fara skemmtilegar leiðir niður að Rangá, í
Galtalækjarskóg eða ríða í áttina að Þjórsá. Landsveitin skartar sínu
fegursta í góðu veðri og ógleymanlegt er að fara í útreiðartúr þar.
Reiðhöll er á staðnum með aðstöðu fyrir námskeiðahald og tamningar.
Heklusetrið á Leirubakka opnaði í maí síðastliðinn. Setrið er opið alla daga frá 10-22. Heklusetrinu hefur verið sett upp nútímaleg og fræðandi sýning um Heklu, sögu hennar og áhrif á mannlíf á Íslandi frá landnámi til okkar daga.
Nú býðst einstaklingum og hópum að fara með snjóbíl á Heklutopp þegar veturinn skartar sínu fegursta og sjóndeildarhringurinn af þessu tignarlega eldfjalli er aldrei stórfenglegri! Að aka í snjónum upp hlíðarnar og standa síðan á toppnum í 1491 metra hæð á heitum vikrinum þar sem má jafnvel hita sér pylsur og samlokur með því að grafa það aðeins niður í vikurinn er upplifun sem ekki er hægt að lýsa með orðum, þú verður að koma og upplifa það sjálfur!
Hestaleiga, hestaferðir, hestasala. Á sumrin er boðið upp á dvöl heima á bænum og m.a. sérstakt fjölskyldprógramm þar sem öll fjölskyldan fær að njóta sín á hestbaki, bæði vanir sem byrjendur. Gestum gefst einnig kostur á að upplifa hina einstöku íslensku réttarstemmningu á haustin. Sumaropnun.
Hestaleiga,
hestaferðir, hestasýningar
og hestasala. Veitingasala og margt fleira, s.s. línudanskennsla og óvissuferðir.
Einnig boðið upp á sveitadvöl þar sem fjöskyldan
getur komið og notið verunnar í sveitinni, verið á hestbaki og tekið þátt
í því sem er verið að gera á bænum.
Hestabúgarður. Gisting, veitingar, vínveitingar, hestaleiga og hestaferðir.
|
|