|
|||
|
Rangárþing eystra > Gisting
Breiðabólstaður er kirkjustaður, staðsettur á fallegum stað í Fljótshlíðinni. Svefnpokapláss í gistiskála sem rúmar 20-25 manns. Hægt að leigja sængur og sængurföt aukalega. Í skálanum er fullbúið eldhús, tveggja manna herbergi inn af eldhúsi, langborð eftir endilöngum salnum, salerni og sturta. Við skálann er verönd með stóru útigrilli, aðstaða í hlöðu ef veður er vont. Kjörinn áfangastaður fyrir hestahópa á leið í inn á hálendið. Hægt að leigja allan skálann sér.
Á farfuglaheimilinu í Fljótsdal komast gestir í náin tegsl við íslenska fortíð því húsið er byggt úr torfi í hefðbundnum íslenskum stíl. Þaðan má líka njóta einstæðs útsýnis til Eyjafjallajökuls og Mýrdalsjökuls. Á nútímamælikvarða má kannski segja að þett farfuglaheimili sé lítið og frumstætt, en náttúrufegurðin vegur það upp. 15 rúm, eldhúsaðstaða fyrir gesti.
9 herbergi, gistirými
fyrir 16-20 manns. Uppábúin rúm, möguleiki á svefnpokagistingu.
Ferðaþjónustan
Hellishólum býður upp á dvöl í góðum heilsárshúsum og einnig
fullkominn 100 manna veislusal fyrir t.d. þorrablót, fermingar og árshátíðir.
Gisting í 3-5 (15 m²), 4-6 manna húsum (20 m²) með
verönd og 5 6manna hús (40m²). Í húsunum er eldhúskrókur
með örbylgjuofni, sjónvarp og baðherbergi með sturtu. Veiði í Þverá
og einnig á tilbúnu veiðisvæði, 9 holu golfvöllur og boðið upp á
ferðir inn á hálendið, s.s. í Emstrur og Markarfljótsgljúfur.
Hótel Hvolsvöllur er veitinga- og gististaður með 43 herbergjum. Á hótelinu er boðið upp á góðan matseðil, bar, heitan nuddpott, skipulagningu hópferða, upplýsingaþjónustu o.fl. Á Hvolsvelli er sundlaug og í næsta nágrenni eru 18 holu golfvöllur, lax- og silungsveiðiár ásamt hestaleigu.
Ferðaþjónustan að Smáratúni
býður upp á heimagistingu í herbergjum á sérhæð á bænum. Hægt
að leigja smáhýsi og 4-6 manna sumarhús. Einnig var verið að opna þar notalegt
sveitahótel Hótel Fljótshlíð. Veitingaaðstaða með bar er til
staðar á bænum í viðbyggðu garðhúsi sem tekur 35-40 manns í sæti. Þar
er borinn fram morgunverður og kvöldverður fyrir gesti eftir pöntun.
Stórt útigrill er einnig á staðnum til afnota fyrir gesti. Hestaleiga, gæsa-
og silungsveiði. Daglegar ferðir í Þórsmörk
og góðar gönguleiðir
um nágrennið.
Tjaldsvæði staðsett sunnan við þorpið við þjóðveg 1. Þjónustað af Vestri Garðsauka. Aðstaða fyrir hjólhýsi, rafmagn og losun. Rennandi vatn og leiktæki fyrir börnin.
Svefnpokapláss, tjaldsvæði, aðstaða fyrir ættarmót o.fl.
Svefnpokapláss, aðstaða fyrir ættarmót o.fl.
Svefnpokapláss, aðstaða fyrir ættarmót o.fl.
Svefnpokapláss, aðstaða fyrir ættarmót o.fl.
Drangshlíð eru 34 stór og rúmgóð herbergi með sturtu og klósetti. Gisting í 3 húsum, uppábúin rúm og svefnpokapláss. Mögulegt er að leigja húsin í heild sinni fyrir fjölskyldur og hópa. Aðstaða fyrir fatlaða. Morgunverðu og veitingar eftir pöntun. Staðsett á fallegum stað undir Eyjafjöllum. 3 km frá Skógum.
4 tveggja manna herbergi, svefnpokapláss fyrir hópa. Tjaldsvæði. Eldunaraðstaða.
Boðið er upp á 6 tveggja manna herbergi með baði. Einnig boðið upp á gistingu í 2 húsum, 38 fm, með baði, lítilli eldunaraðstöðu og fallegri verönd. Húsin taka 4-6 í gistingu. Hótel Edinborg er staðsett við þjóðveg 242, Raufarfell, sem jafnframt liggur að Seljavallalaug undir Austur Eyjafjöllum, nokkur hundruð metrar eru að sundlauginni að Seljavöllum.
Á hótelinu eru 5 herbergi. Stærð hótelsins skapar persónulega þjónustu sem gestir njóta. Öll herbergin eru vel útbúin með sjónvarpi, síma, minibar og baðherbergi með sturtu. Önnuhús er glæsilegur 60 manna veitingasalur sem hefur getið sér gott orð fyrir skemmtilegt andrúmsloft og frábærar veitingar, allt frá kaffi og kökum til glæsilegs kvöldverðar. Einnig er hægt að fá fylgd með leiðsögn um bæinn og kynnast þannig íslensku sveitalífi.
Herbergin eru alls 34 í tveimur húsum, þau eru öll tveggja manna með handlaug. Innisundlaug og heitur pottur er úti í litlum afgirtum garði. Svefnpokaaðstaða fyrir 20 manns er í íþróttasalnum með dýnur á gólfunum. Fín fundaraðstaða fyrir 30 40 manns. Glæsilegt kvöldverðarhlaðborð sem Hótel Edda á Skógum er orðið vel þekkt fyrir. Opið frá júní til ágúst.
Hótelið er með
12 herbergjum. Öll herbergin eru með vönduðum innréttingum, baði, síma, sjónvarpi,
baðslopp. Einnig er hægt að fá morgunverð á herbergin. Glæsilegur veitingastaður
með arni og stórri skjólgóðri verönd þar sem rúmast allt að 35
manns innandyra og annað eins utandyra. Garður sem státar af heitum
potti og sauna. Frá 1. sept til 15. maí er eingöngu opið um
helgar.
Farfuglaheimilið að Skógum er staðsett í gamla barnaskólanum rétt við Skógarfoss, einn þekktasta foss Íslands. Gistiaðstaða fyrir 30 manns.
Bjóða upp á gistingu í svefnpokaplássi og morgunmat. Það eru kojur fyrir 18-20 manns í einu sameiginlegu rými sem hægt er að skipta í tvennt með tjaldi. Einnig er eldhús með góðri eldunaraðstöðu ásamt rými þar sem þú getur sest niður og borðað.
Gisting fyrir allt að
16 manns í fjórum rúmgóðum herbergjum með eða án baðs.
Uppábúin rúm og/eða svefnpokagisting. Morgunverðarhlaðborð og aðrar
máltíðir eftir pöntun. Fullbúið eldhús fyrir þá sem vilja elda
sjálfir. Setustofa með sjónvarpi.
Margar skemmtilegar gönguleiðir í nágrenninu sem henta öllum. Boðið upp
á stuttar ferðir í Þórsmörk fyrir 1-4 manns með persónulegri leiðsögn
þaulkunns leiðsögumanns.
Húsið stendur í jaðri bæjarins. Herbergin eru 4 falleg 2ja manna herbergi. Svefnpokagisting og uppábúin rúm. Eldunaraðstaða.
Í boði er íbúð á jarðhæð með sérinngangi, þrjú svefnherbergi (2x2ja manna og 1x3ja manna), stofa, eldhús og baðherbergi. Morgunmatur í boði ef óskað er eftir. Búðarhóll stendur við veg 253 í Austur-Landeyjahreppi hinum forna, 4 km frá flugvellinum á Bakka. Héðan er stutt í Þórsmörk, Vestmannaeyjar, Seljalandsfoss og Skóga. Njáluslóð ekki langt undan. Fögur fjallasýn í friðsælu umhverfi. Dvalargestir geta keypt veiðileyfi.
Tjaldsvæði í fögru umhverfi. Opið frá 1. maí til 15. september.
Tjaldsvæði, sundlaug, heitur pottur. Opið frá 1. maí til 15. september.
Tjaldsvæði við einn fallegasta foss landsins, Skógafoss. Sérleyfisbílar stoppa við tjaldsvæðið.
Tjaldsvæði. Grandavör er staðsett á landnámsjörðinni Hallgeirsey í Austur – Landeyjum í Rangárþingi eystra. Sigursæll ehf rekur Grandavör sem er fyrst og fremst tjaldsvæði sem er opið á tímabilinu Júní – Sept.
2 x 5 manna sumarbústaðir á fallegum stað undir Eyjafjöllum. Tvö svefnherbergi (hjónaherbergi og kojuherbergi), einnig svefnloft með dýnum. Heitir pottar og gasgrill við hvort hús. Merktar gönguleiðir um fjalllendið upp undir Eyjafjallajökul, frábært útsýni, sérstök gil og gljúfur. Silungsveiði og hestaleiga í nágrenninu.
Gisting í 9 sumarhúsum. Í 8 húsum eru tvö tveggja manna herbergi en fjögur eins manns í einu húanna. Eldunaraðstaða er í 7 húsum. Einföld gisting í svefnpokaplássi eða með rúmfötum. Hægt er að leigja eitt tveggja manna herbergi og þrjú fjögurra manna herbergi sem eru með uppbúnum rúmum í stóra húsinu. Stutt er í sundlaug sem er staðsett á Hvolsvelli.
Lambafell er glæsilegt bjálkahús sem er staðsett undir Eyjafjallajökli á suðurströnd Íslands. Gisting er fyrir tíu manns í fimm stórum og flottum herbergjum. Einnig er ein stór svíta.
|
|