Vík > Afþreying

IMG_9713 Ferðaþjónustan - Vélsleðaferðir á Mýrdalsjökli

 senda fyrirspurn

Ferðaþjónustan Arcanum býður m.a. upp á fjölbreyttar vélsleðaferðir á Mýrdalsjökli. Hinar vinsælu 1 klst. ferðir gefa þátttakandanum góða innsýn í þennan skemmtilega ferðamáta. Á Mýrdalsjökli er ferðamaðurinn fræddur um einstaka jarðfræði jökulsins milli þess að brunað er um jökulbreiðuna. Að ferð lokinni gefst kostur á veitingum í hlýjum og notalegum fjallaskála Arcanum. Arcanum býður einnig upp á spennandi ferðir á fjórhjólum í nágrenni jökulsins.

 

Brydebúð

 senda fyrirspurn

Brydebúð í Vík, menningarsetur Mýrdælinga, er kjörinn viðkomustaður ferðamanna þar sem saga og menning héraðsins er gerð sýnileg með ýmsu sýningarhaldi. Þar er einnig kaffihúsið Halldórskaffi sem býður upp á kaffiveitingar og létta rétti. Upplýsingamiðstöð ferðamála er starfrækt í Brydebúð yfir sumartímann.

 

Dyrhólaeyjarferðir

 senda fyrirspurn

Dyrhólaeyjarferðir bjóða upp á áhugaverðar kynnisferðir um svæðið; útsýnisferðir með leiðsögn á hjólabát.  Boðið er upp á tvenns konar ferðir, þ.e. sjóferð eða landferð.  Í báðum tilvikum er lagt af stað frá Dyrhólum, sem er bær í um 2 km fjarlægð frá þjóvegi 1 þegar ekið er niður í Dyrhólahverfi.  Ferðir þessar taka u.þ.b. 1 klst.

 

Fagradalsbleikja

 senda fyrirspurn

Ferðamenn velkomnir að koma og skoða fiskeldisstöðina hjá Fagradalsbleikju ehf. Á sama stað eru til sýnis og sölu ljósmyndir teknar af Jónasi Erlendssyni. Einnig seld reykt bleikja, reyktur og grafinn lax og fersk bleikja, en hana þarf að panta með fyrirvara.

 

Geislabrot

 senda fyrirspurn

Mikið úrval af ýmiskonar handunni gjafavöru.

 

Gólfklúbburinn Vík

 senda fyrirspurn

Á vellinu eru 3 brautir par 3, 4 brautir par 4 og 2 brautir par 5.

 

Kvöldferðir


 

Skipulagðar afþreyingar- og jeppaferðir í nágrenni Víkur. Einnig ferðir eftir þínu höfði. Nánar upplýsingar veita Einar Bárðarson og Sandra Brá Jóhannsdóttir. 

 

Leita í vefsíðu