|
|||
|
Vík > Gisting
Sólheimahjáleiga er sveitabær með hefðbundinn búskap og ferðaþjónustu.
Bændur á bænum leggja mikið upp úr snyrtilegu, rólegu og notalegu
umhverfi. Gestir geta fylgst með bústörfum í samráði við bændurna
og fá um leið fræðslu ef þeir óska.
2 x 5 manna bjálkahús (50
m²). 3 svefnherbergi ( 2 tveggja manna og 1 eins manns). Svefnloft,
eldhúskrókur, setustofa og baðherbergi. Möguleiki á að panta
morgunmat; húsráðandi kemur með körfu fulla af góðgæti! Eru einnig
með hestaleigu, bjóða upp á 1-3 klst. reiðtúra og kennslu fyrir óvana.
Gisting í uppábúnum rúmum eða svefnpokagisting. Morgunmatur og Kvöldverður. Sumaropnun.
Gisting í uppábúnum rúmum eða svefnpokapláss í 6 góðum herbergjum, 3x eins manns og 3x 2ja manna herbergi. Heitur pottur. Herbergin eru öll með handlaug, Morgunverður er í boði og léttur kvöldverður ef óskað er og pantað fyrirfram. Opið allt árið.
Gistiheimilið Ársalir
var áður bústaður sýslumanns Skaftfellinga, sem þá var sýslumaður
beggja sýslna. Þetta stóra, tignarlega hús blasir við ferðamönnum
þegar komið er til Víkur að vestan þar sem það stendur eitt og
stakt fyrir ofan Bæjargil. Ársalir bjóða bæði
upp á gistingu í uppbúnum rúmum og svefnpokapláss og eru með 6
tveggja manna herbergi og 14 svefnpokapláss.
Norður-Vík er stórt, reisulegt hús sem stendur ofarlega í Norður-Víkurtúni, rétt norðan þorpsins og og þaðan er frábært útsýni yfir byggðina, ströndina og hafið. Gistiheimilið býður upp á uppbúin rúm og svefnpokapláss. Á heimilinu er gestaeldhús og setustofa sem gestir hafa aðgang að. Stutt er í alla þjónustu.
Hótel Dyrhólaey er staðsett
á Brekkum, ofan á hálsi fyrir neðan fjallið Búrfell. Þaðan er
fagurt útsýni yfir Mið-Mýrdalinn, þ.e. Reynishverfi,
Reynisfjall, Reynisfjöru, að ógleymdri Dyrhólaey sem hótelið dregur
nafnið sitt af. Hótelið býður upp á gistingu í uppbúnum rúmum og
eru öll herbergin með baði. Stór og rúmgóður matsalur er á hótelinu.
Hótelið býður upp á gistingu í 21 tveggja manna herbergjum með síma, sjónvarpi og baði. Einnig boðið upp á gistingu í sumarhúsum skammt frá hótelinu. Á hótelinu sjálfu er morgunverðarsalur sem tekur allt að 60 manns í sæti og glæsilegur veitingasalur í Víkurskála þar sem borinn er fram kvöldverður.
Hótel Höfðabrekka er vinalegt sveitahótel í hinu margrómaða og
fallega umhverfi Víkur í Mýrdal. Það er við þjóðveg 1, um 5 km
austan við Vík og er opið allt árið. Hér eru 62 vel búin tveggja
manna herbergi með baði og 3 herbergi án baðs. Á hótelinu er
veitingastaður sem tekur allt að 120 manns í sæti þar sem við bjóðum
gestum upp á ljúffengt kvöldverðarhlaðborð yfir sumartímann. Einnig
er hádegisverður í boði fyrir hópa, en gestgjafarnir á Höfðabrekku
hafa ætíð lagt áherslu á trausta og persónulega þjónustu, góðan
mat og vinalegt umhverfi í veitingasal sínum.
Í
friðsælu umhverfi við rætur Reynisfjalls er Hótel Lundi. Hótelið er
búið 10 tveggja manna og 2 eins manns þægilegum herbergjum með
snyrtingu, hárþurrku og síma. Niðri er notalegur veitingasalur og bar.
Einnig 20 svefnpokapláss í eins, tveggja og þriggja manna herbergjum,
ásamt eldunaraðstöðu og matsal. Tilvalinn staður fyrir unnendur íslenskrar
náttúru og fuglalífs.
Sumarhús með öllum búnaði, fyrir allt að fjóra. Leigð til skemmri eða lengri tíma. Standa í fjallshlíðinni á frábærum stað. Stutt í gólfvöllinn.
Garðar eru syðsti
bær landsins og er staðsettur við Reynisfjöru. Smáhýsið er á
fallegum stað við fjallsræturnar og fjörujaðarinn, þannig að gestum
finnst þeir einir í heiminum með brimströndina í nágrenninu og
vinalegt gargið í múkkanum. Náttúruperlur á borð við Dyrhólaey og
Reynisdranga eru skammt undan. Smáhýsið tekur fjóra í gistingu og er
þar eldunaraðstaða og bað.
Tjaldsvæðin í Vík eru rómuð
fyrir fagra staðsetningu. Múkkinn verpir í bjarginu fyrir ofan og
vaknar fólk við vinalegt gargið í honum á fögrum sumardagsmorgnum. Góða
sturtu- og hreinlætisaðstöðu er að finna í þjónustumiðstöðinni.
Við tjaldsvæðið er einnig staðsettur fallegur burstabær með tveimur
burstum, Hötturinn, sem setur skemmtilegan svip á fallegt umhverfið
undir Víkurhömrum. Hötturinn skiptist í tvö hús og er pláss fyrir 6
manns í hvoru húsi.
Náttúruperlan Þakgil er staðsett
á Höfðarekkuafrétti milli Mýrdalsjökuls og Mýrdalssands 14 km frá
þjóðveginum. Eins og nafn gilsins bendir til er þar mikil veðursæld.
Beygt er út af þjóðveginum við Höfðabrekku sem er 5 km austan við
Vík. Ekið er sem leið liggur inn á heiðar, eftir vegi sem var þjóðvegur
nr. 1 til 1955, þar til komið er að skilti sem bendir inn í Þakgil.
Vegurinn inn í Þakgil er fær öllum bílum.
|
|