|
Vík > Veitingar
Halldórskaffi er í austurenda Brydebúðar og ber með
sér sjarma liðinnar tíðar. Kaffihúsið býður upp á kaffiveitingar og létta
rétti. Þar er einnig góð aðstaða til myndlistasýninga yfir sumarið.
Halldórskaffi er opið alla daga á sumrin frá kl. 11:00 til 23:00 sunnudaga
til föstudaga en 11:00 til 02:00 á laugardögum.
Á Hótel Höfðabrekku er
veitingastaður sem tekur allt að 120 manns í sæti þar sem gestum er
boðið upp á ljúffengt kvöldverðarhlaðborð yfir sumartímann. Einnig
er hádegisverður í boði fyrir hópa, en gestgjafarnir á Höfðabrekku
hafa ætíð lagt áherslu á trausta og persónulega þjónustu, góðan
mat og vinalegt umhverfi í veitingasal sínum.
Veitingasalur og
bar.
Söluskáli, bensínstöð og vinsælt veitingahús, Víkurgrill,
þar sem boðið er upp á algengan heimilismat og sérrétti af grillinu. Í
veitingasalnum Ströndinni er tekið á móti hópum í mat.
|