|
|||
|
Kirkjubæjarklaustur > Gisting
Farfuglaheimilið að Hvoli er u.þ.b. 24km
austan við Kirkjubæjarklaustur og 45 km vestan við Skaftafell og er því
tilvalin
gististaður fyrir þá sem hyggjast ganga um
þjóðgarðinn í Skaftafelli eða skoða Jökulsárlónið.Fallegt útsýni og
mikið
fuglalíf er í kringum heimilið. Fjöldi rúma
er 70 í tveimur húsum, í eins, tveggja.þriggja,fjögurra og fimm manna
herbergjum. Á heimilinu
eru vel útbúin gestaeldhús, stór matsalur og
setustofa með sjónvarpi.
.
Gisting í uppbúnum rúmum og svefnpokaplássi. Morgunverður ef þess er óskað. Heitur nuddpottur. Tjaldsvæði með sturtum, WC og verslun.
Lítið
skólahús.
Svefnpokagisting í einum sal, pláss fyrir 10-15 manns. Hreinlætis- og eldunaraðstaða. Opið allt árið.
Svefnpokagisting og eldunaraðstaða.
Heimagisting í tveggja eða
þriggja manna herbergjum og smáhýsum. Gistirými fyrir allt að 38 manns.
Morgunverður innifalinn í gistingu. Ljúffengur hádegisverður. Góða aðstaða
fyrir litla hópa. Opið allt árið. Geirland er 2 km frá þjóðvegi 1.
Fjallaskáli þar sem rúmast 55 manns og 8 manna bjálkahús. Tjaldsvæði. Snyrtiaðstaða. Aðstaða fyrir hestamenn. Heysala. Opið10/6 - 10/9.
Hótel Kirkjubæjarklaustur er nýlegt
og glæsilegt hótel með 57 herbergjum. Veitingasalur hótelsins er hlýlegur og rúmgóður, tekur allt að 150
manns í sæti. Matseðillinn er fjölbreyttur, einnig eru þar smærri
salir sem henta vel fyrir einkasamkvæmi, ráðstefnur og fundi.
Gisting
í 13 herbergjum, tveggja og þriggja manna, bæði í smáhýsum og heima á bænum.
Hægt er að fá gistingu í uppbúnum rúmum og/eða svefnpokapláss. Morgunverður, kvöldverður og vínveitingar.
Gæsa- og stangveiði. Áhugaverðar gönguleiðir í nágrenninu. Hunkubakkar
eru 1 km frá þjóðvegi 1, á leið inn að Lakagígum.
13 x 6 manna bústaðir. Í hverju
húsi eru 2 svefnherbergi, tvíbreitt rúm með koju yfir og
innangengt svefnloft. Vel útbúið eldhús, sjónvarp, útvarp með
geislaspilara, verönd með útiborði, kolagrilli og heitum pottum. Tjaldsvæði með sturtum
og salernisaðstöðu. Leiktæki fyrir börn. Á staðnum er söluskáli með
nauðsynja vörum. Góðar gönguleiðir í nágrenni
og fallegt útsýni. Lítill skógur fyrir ofan húsin og mikið fuglalíf á svæðinu.
Veiðileyfi í Vatnamótin og Hörgsá. Hörgsland er við þjóðveg 1, 5 km
austan Kirkjubæjarklausturs.
Sumarhóteli
á Klaustri er starfrækt í grunnskólanum. Uppbúin rúm í 16
herbergjum og möguleiki á svefnpokagistingu fyrir allt að 50 manns á dýnum
í skólastofum. Veitingasalur
sem tekur um 100 manns og á hótelinu er útisundlaug með heitum potti.
Þjónustuhús með salernis-, sturtu-, eldunar- og þvottaaðstöðu. Hreinlætisaðstaða fyrir fatlaða.
Tjaldsvæði rétt utan við Kirkjubæjarklaustur.
|
|