|
Vestmannaeyjar > Afþreying
Sýningar eru um mannlíf og útgerð í
Vestmannaeyjum og einnig um eldgosin á Heimaey 1973 og í Surtsey
1963-1967.
Opnunartími Byggðasafns og Landlystar: Alla daga frá
maí til ágúst kl. 11:00 17:00. Laugardaga og sunnudaga frá
september til apríl kl. 15:00 17:00.
Fiska-, fugla- og steinasafn. Í 12 kerjum eru að
jafnaði allar helstu tegundir nytjafiska, sem veiðast við Ísland, auk
krabba, sæfífla, krossfiska og skeldýra. Á safninu eru einnig flestir íslensku
varpfuglarnir uppsettir, svo og mikill fjöldi flækingsfugla, og eru
nokkrir þeirra þeir fyrstu á landinu. Þá eru í safninu egg nær
allra íslenku varpfuglanna. Fiska-
og náttúrugripasafnið hýsir þar að auki eitt merkasta steinasafn
landsins sem telur á annað þúsund íslenskra steina.
 |
Gallerí
Heimalist |

|
Fjölbreytt handverk.
 |
Viking
Tours |
|
Alhliða
skemmtiferðir í Vestmannaeyjum, bæði fyrir hópa og einstaklinga.
Ævintýraferðir á landi sem sjó.
M.a. skoðunarferðir um nýja hraunið og gömlu eyjuna, hvalaskoðun,
bátsferð umhverfis Heimaey, hellaskoðun o.fl.
 |
Eyjaferðir |
|
Fyrir þá sem vilja getum við skipulagt dvöl ykkar hér í
Vestmannaeyjum hvort sem það er fyrir hópa eða einstaklinga. Hjá
okkur færðu upplýsingar um fallegar gönguleiðir um Heimaey og bendum
á áhugaverða staði, hvort sem það er gönguferð uppá Eldfell, um
lundabyggðir eða um nýja hraunið
 |
Gólfvöllurinn
í Herjólsdal |
|
|
18 holu gólfvöllur í Herjólsdal. Opið nánast allt
árið.
|