Vestmannaeyjar > Gisting

Gistiheimilið Árný

 

Boðið upp á gistingu í uppbúnum rúmum og svefnpokapláss í 2-7 manna herbergjum. Morgunverður ef þess er óskað. Fullbúið eldhús og sameiginleg baðaðstaða. Sjónvarp inni á öllum herbergjum. 

 

Gistiheimilið Bólið

 senda fyrirspurn

Uppábúin rúm og svefnpokagisting í eins og/eða tveggja manna herbergjum. Eldunaraðstaða og hjólaleiga.

 

Gistiheimilið Erna

 senda fyrirspurn

Gistiheimilið Erna er í jaðri nýja hraunsins í u.þ.b. 5 mínútna göngufæri frá miðbænum. Þar er boðið upp á gistingu í uppbúnum rúmum í þægilegum herbergjum, öll búin sjónvarpi. Sameiginleg baðaðstaða og fullbúið eldhús með örbylgjuofni og öllum nauðsynlegum búnaði.

 

Gistiheimilið Hreiðrið

 senda fyrirspurn

Uppábúin rúm og svefnpokagisting í eins og/eða tveggja manna herbergjum.  Eldunaraðstaða og hjólaleiga.

 

Gistiheimilið Hvíld

 senda fyrirspurn

Gistiheimilið Hvíld er staðsett í rólegu umhverfi miðsvæðis milli flugvallar og hafnar. Þar er hægt að fá gistingu í lengri eða skemmri tíma í uppbúnum rúmum eða svefnpokaplássi. Sjónvarp er í flestum herbergjum og sameiginleg baðaðstaða og borðstofa. Þá er góður garður og útigrill til notkunar yfir sumartímann. Golfvöllur, íþróttamiðstöð og sundlaug eru í næsta nágrenni.

 

Gistiheimilið María

 senda fyrirspurn

Gistiheimilið María er heimilislegt átta herbergja gistiheimili í nýinnréttuðu tveggja hæða steinhúsi í rólegu hverfi, aðeins 5 mín frá miðbænum. Tvö baðherbergi eru í húsinu, eitt á hvorri hæð. Þar er einnig eldhús með eldunaraðstöðu fyrir gesti. Gistiheimilið býður upp á gistingu í 1-3 manna herbergjum í uppbúnum rúmum, með eða án morgunverðar.

 

Gistiheimilið Sunnuhóll

 senda fyrirspurn

Gistiheimilið Sunnuhóll er staðsett bakvið Hótel Þórshamar. Fjöldi herbergja er 8 og í öllum herbergjum er sjónvarp. Sameiginlegt eldhús er á fyrstu hæð og baðherbergi með sturtu á hvorri hæð. Möguleiki á morgunverði á Hótel Þórshamri.

 

Gistihúsið Hamar

 senda fyrirspurn

Gistihúsið Hamar er staðsett í hjarta bæjarins. Fjöldi herbergja er 14 og eru þau öll búin sjónvarpi, útvarpi og baðherbergi með sturtu. Möguleiki á morgunverði á Hótel Þórshamri. Á staðnum er aðstaða til fundarhalda ásamt þráðlausri nettengingu.

 

Gistihúsið Heimir

 

Gistihúsið Heimir er staðsett í hjarta bæjarins og býður gesti velkomna í þægileg og heimilisleg tveggja, þriggja og fjögurra manna herbergi. Morgunverður ef þesss er óskað.

 

Gisting

 

Eitt stórt herbergi með sér inngangi, baðherbergi, sjónvarpi, ísskáp, kaffikönnu, borði og stólum.  Eitt hjónarúm og eitt einbreitt rúm, hægt að bæta inn dýnum.   

 

Hótel Eyjar

 senda fyrirspurn

Gisting í rúmgóðum og þægilegum íbúðum í hjarta bæjarins. Hótel Eyjar er með tíu íbúðir, allar með baði, eldunaraðstöðu og sjónvarpi. Sumar íbúðirnar eru með svefnsófa. Morgunverðarsalur er í glerskála á þaki hótelsins og þar er einnig hægt að fá afnot af grilli.

 

Hótel Mamma

 senda fyrirspurn

Gistihúsið Hótel Mamma er staðsett gegnt Hótel Þórshamri. Fjöldi herbergja er 7 og eru þau öll búin sjónvarpi, útvarpi og myndbandstæki. Sameiginlegt eldhús og baðherbergi er á hvorri hæð. Fjölskylduvæn gisting sem líkist íbúðahóteli með fullkomnum hótelrúmum. Í kjallara er boðið upp á afnot af þvottavél og þurrkara. Möguleiki á morgunverði á Hótel Þórshamri.

 

Hótel Þórshamar

 senda fyrirspurn

Hótel Þórshamar er þægilega staðsett í hjarta Vestmannaeyjabæjar. Fjöldi herbergja er 21 og eru þau öll búin sjónvarpi, myndbandstæki, útvarpi, síma, minibar og baðherbergi með sturtu. Þráðlaus nettenging er á hótelinu. Morgunverður er framreiddur á veitingastaðnum Fjólunni á fyrstu hæð hótelsins. 

 

Í svefnherbrgi er hjónarúm sem má auðveldlega taka í sundur og hafa sem tvö einstaklingsrúm Íbúðagisting 

 senda fyrirspurn

Allar íbúðirnar eru með sérinngangi. Húsið stendur á einum veður- og friðsælasta stað í bænum og er stutt í miðbæinn. Nýja hraunið í miðbænum umlykur húsið á þrjá vegu. Íbúðirnar eru endurnýjaðar að innan frá grunni árið 1999. 

 

Eyjabústaðir

 senda fyrirspurn

Eyjabústaðir er ungt og metnaðarfullt fyrirtæki sem leigir út þrjá glæsilega sumarbústaði og fullkomin veislu og ráðstefnusal í Vestmannaeyjum. Bústaðirnir eru allir hinir glæsilegustu, búnir öllum helstu tækjum og tólum sem þú þarft til að sumafríið þitt sé eftirminnilegt.

 

Smáhýsi

 senda fyrirspurn

stærra húsinu eru 4 rúm, eldavél, ísskápur og snyrting með sturtu. Í því minna eru 3 rúm, eldunarhellur, ísskápur og snyrting. Sængur eru í báðum húsunum en sængurfatnað er hægt að leigja gegn hóflegu þvottagjaldi. Ofanleiti er rétt fyrir ofan kaupstaðinn á Heimaey. Þar er stundaður frístundabúskapur, gæsir, endur kanínur ofl.

 

 

Jói á Hólnum

 

Býður upp á gistingu í 5 herbergjum fyrir 7-8 manns.

 

Tjaldsvæðið Herjólfsdal

 

Mjög góð aðstaða: salerni, sturtur, þvottavél og þurrkari.  Rafmagn fyrir fellihýsi. Aðstaða fyrir hópa í sal í skátaheimilinu. Góð salernisaðstaða, setustofa og sjónvarp.

 

 

 

 

Leita í vefsíðu