Vestmannaeyjar > Afþreying

Byggðasafn Vestmannaeyja

 senda fyrirspurn

Sýningar eru um mannlíf og útgerð í Vestmannaeyjum og einnig um eldgosin á Heimaey 1973 og í Surtsey 1963-1967. Opnunartími Byggðasafns og Landlystar: Alla daga frá maí til ágúst kl. 11:00 – 17:00. Laugardaga og sunnudaga frá september til apríl kl. 15:00 – 17:00.

 

Fiska- og náttúrugripasafn Vestmannaeyja

 senda fyrirspurn

Fiska-, fugla- og steinasafn. Í 12 kerjum eru að jafnaði allar helstu tegundir nytjafiska, sem veiðast við Ísland, auk krabba, sæfífla, krossfiska og skeldýra. Á safninu eru einnig flestir íslensku varpfuglarnir uppsettir, svo og mikill fjöldi flækingsfugla, og eru nokkrir þeirra þeir fyrstu á landinu. Þá eru í safninu egg nær allra íslenku varpfuglanna. Fiska- og náttúrugripasafnið hýsir þar að auki eitt merkasta steinasafn landsins sem telur á annað þúsund íslenskra steina.

 

Gallerí Heimalist

 

Fjölbreytt handverk. 

 

Viking Tours

 

Alhliða skemmtiferðir í Vestmannaeyjum, bæði fyrir hópa og einstaklinga.  Ævintýraferðir á landi sem sjó.  M.a. skoðunarferðir um nýja hraunið og gömlu eyjuna, hvalaskoðun, bátsferð umhverfis Heimaey, hellaskoðun o.fl.

 

 

Eyjaferðir


Fyrir þá sem vilja getum við skipulagt dvöl ykkar hér í Vestmannaeyjum hvort sem það er fyrir hópa eða einstaklinga. Hjá okkur færðu upplýsingar um fallegar gönguleiðir um Heimaey og bendum á áhugaverða staði, hvort sem það er gönguferð uppá Eldfell, um lundabyggðir eða um nýja hraunið

 

Gólfvöllurinn í Herjólsdal

18 holu gólfvöllur í Herjólsdal. Opið nánast allt árið.